Heim arrow Þjónustan arrow Undirbúningur
Undirbúningur
Dæmi um útför
Til athugunar
Kistur
Undirbúningur   Prenta  Senda 

Upplýsingar sem útfararstjóri þarf að fá

Við dauðsfall hafa aðstandendur annað hvort samband við prest eða útfararstjóra. Útfararstjóri þarf að fá ýmsar upplýsingar um hinn látna og mun útvega sérstakt eyðublað til útfyllingar þar sem m.a. kemur fram fullt nafn hins látna, kennitala, lögheimili, dánarstaður og dánardægur og fleiri atriði er varða kistulagningu og útförina sjálfa, einnig nafn, kennitala, heimili og sími nánasta aðstandenda.

Vottorð

Læknir hins látna gefur í flestum tilfellum út dánarvottorð. Ef krufning hefur farið fram gefur krufningar- eða héraðslæknir dánarvottorðið út.

Síðan fara aðstandendur með vottorðið til skiptaráðanda og tilkynna andlátið.

Skiptaráðandi heldur eftir hluta af vottorðinu, en aðstandendur fá vottorðið og skriflega staðfestingu sem síðan er afhent prestinum fyrir útförina.

Ýmsar upplýsingar

Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við jarðarför látinna félagsmanna sinna og er aðstandendum bent á að kynna sér þau mál hjá viðkomandi stéttarfélagi.

Um erfðamál gilda ýmis lög og reglugerðir og bendum við því aðstandendum á að leita til lögfræðings ef óvissa ríkir um þau mál.

Ákvarðanir sem taka þarf

Aðstandendur velja kistu og klæðnað á hinn látna.

Ákveða þarf stað og stund fyrir kistulagningu í samráði við prest og útfararstjóra.

Ákveða þarf stað og stund fyrir jarðarför í samráði við prest og útfararstjóra.

Ákveða þarf hvort og þá hvaða tónlist skal flutt við jarðarförina í samráði við prest og útfararstjóra.

Ákveða þarf í samráði við útfararstjóra hve margir líkmenn beri kistuna úr kirkjunni og í kirkjugarðinn. Yfirleitt eru 6 eða 8 sem bera.

Ákveða þarf hvort sálmaskrá skuli vera við jarðarförina í samráði við prest og útfararstjóra.

Ákveða þarf hvort erfidrykkja skal vera. Erfidrykkjur fara yfirleitt fram á heimili aðstandenda, í safnaðarheimilum eða á öðrum stöðum sem bjóða slíka þjónustu.


Hér erum við Kynning Þjónusta Hafa samband
Útfararstofa Hafnarfjarðar | Flatahrauni 5a | Sími: 565 5892 | Fax: 565 5891 | sverrir@utforin.is