Heim arrow Þjónustan
Undirbúningur
Dæmi um útför
Til athugunar
Kistur
Þjónustan   Prenta  Senda 

Þjónusta sem útfararstofan veitir

Flytur hinn látna af dánarstað, einnig sjáum við um að útvega flutning um lengri veg svo sem utan af landi, út á land, til útlanda, eða til landsins.

Útfararstjóri gengur frá hinum látna í kistu og annast líksnyrtingu í fullu samráði við aðstandendur.

Útvegar sálmaskrá í samráði við prest og aðstandendur.

Útfararstjóri mun útvega tónlistar og söngfólk eða aðstoða við það sé þess óskað.

Útvegar blómaskreytingar, kransa eða fána sé þess óskað.

Pantar legstað sé hann ekki fyrir hendi.

Borgarleg útför

Hægt er að jarðsyngja án prests, það er það sem kallað er borgaraleg útför. Allir, burt séð frá því hvaða trúfélagi viðkomandi tilheyrir, eiga rétt á legstað í kirkjugarði.

Legstaður

Nýjum legstað er úthlutað ef ekki er til frátekinn legstaður.

Hægt er að fá einn eða tvo legstaði við hlið hins látna ef óskað er.

Sé til frátekinn legstaður þarf rétthafi hans (sé ekki um hinn látna að ræða) að gefa skriflegt leyfi um að þar megi grafa.

Auglýsingar

Oftast er andlát og jarðarför auglýst í fjölmiðlum, það er í dagblöðum og útvarpi. Ef aðstandendur ákveða hins vegar að hafa jarðarförina í kyrrþey er auglýst eftir að jarðarförin hefur farið fram.

Aðstandendur senda oft þakkarkort eða auglýsa í fjölmiðlum nokkru eftir að útför er afstaðin.


Hér erum við Kynning Þjónusta Hafa samband
Útfararstofa Hafnarfjarðar | Flatahrauni 5a | Sími: 565 5892 | Fax: 565 5891 | sverrir@utforin.is